25.05.07 - Marta skrifar:

 

Hæ Ísland.

Í gær þegar allt var tilbúið til brottfarar og Inger hundakona ætlaði að leggja af stað með mig og alla félagana, þá upphófust miklir stælar í hundunum og við þurftum að hætta við og tjalda aftur. Við reyndum aftur síðar um kvöldið og gengum til klukkan fjögur sl. nótt en það gekk á ýmsu með fja... hundana og þurfti ansi oft að stoppa. Vonandi gengur þetta betur í dag, föstudag. Það var frekar kalt að ganga í nótt og gott að fara í hlýja dúnpokann frá Halldóri í Fjallakofanum, sem var svo hlýr að ég var komin á nærbuxurnar þegar ég vaknaði í morgun. Allur búnaður er góður og mér líður vel. Er reyndar ansi aum í höndunum eftir sleðann. Nú er það hafragrauturinn og gera sig klára fyrir daginn, meiningin er að ganga til miðnættis. Ég er víst orðin vel lyktandi og fín...

Kær kveðja, Marta.


Fararstjóri gefur skýrslu

Christian Eide skrifar dagbók:

c_documents_and_settings_administrator_my_documents_my_pictures_marta_g_chr_eide.jpg


Þrír af sjö leiðangursmönnum

Pål, Kristian og Herman (17 ára) að leggja í hann frá Osló:

c_documents_and_settings_administrator_my_documents_my_pictures_marta_g_dsc_1471.jpg


Kóngar á Grænlandi

      Grænlandshundategundin er sú sem er mest skyld úlfum. Þeirra tilvera er ekkert stofulíf heldur miskunnarlaus kuldi og púl. Grænlenskir hundar eru vinnuþjarkar að upplagi. Þeir eru langt frá því að vera gæludýr þó hægt sé að venja þá sem slíka. Á Grænlandi eru þeir fyrst og fremst notaðir til að draga sleða fyrir veiðimenn og einnig fyrir ferðamenn í leiðöngrum. Hundarnir eru geysilega harðgerðir og frumstæðir með einfaldar þarfir sem snúast um mat, vinnu, pörun, slagsmál og hvíld. Þeirra bestu eiginleikar eru kraftar til sleðadráttar. Hver hundur dregur hátt í tvöfalda eigin þyngd yfir lengri vegalengdir. Grænlandshundar eru flokksdýr og þeir fylgja lögmálum stigveldis þar sem aðeins þeir sterku eru samþykktir. Þrátt fyrir það eru þeir vinalegir og ágætir félagar mannsins en ekki sérlega húsbóndahollir. Fái þeir mat munu þeir vinna; dýpri tilfinninga er ekki að vænta. Grænlenskir sleðahundar hafa algjörlega aðlagast heimskautaumhverfinu og að því best er vitað eru þeir eina hundategundin sem getur lifað eingöngu af frosnum mat og í snjó. Þeir éta nánast hvað sem er, selakjöt, allar fisktegundir, hundamat eða matarleifar. Ekki er ráðlegt að gefa þessum hundum mat úr lófa, það er ekki víst að þeir geri greinarmun á hönd eða því sem hún heldur á.

 

Nýir vinir Mörtu?

c_documents_and_settings_administrator_my_documents_my_pictures_marta_g_ghun-imag-hundeglam-larsebbesen.jpg


Bloggfærslur 26. maí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband