05.06.07 - Basl...

Þungur dagur fyrir hundana. Við erum nú komin á svæði þar sem er mikill nýfallinn snjór. Þegar ég tek af mér skíðin sekk ég upp að hnjám í snjónum.

Við enduðum með að basla 25 km og ég efast um að við komumst lengri vegalengd á morgun miðvikudag. Við erum nú 123 km frá efsta hluta skriðjökulsins og reikna má með að heill dagur fari í að komst þar niður. Í kvöld erum við 2100 m.y.s.

Veðrið í dag hefur einkennst af austlægum vindi sem snerist meira í suður síðdegis. Nú í kvöld er vindurinn vestlægur. Vona að sú átt haldist. Herman er búinn að uppgötva að það þykknar alltaf upp þegar við borðum hádegismat; þrátt fyrir mismunandi tímasetningar. Í kvöld er pastamáltíð með kjöti og nýbökuð kaka "a la fararstjóri".

Jákvætt í dag 1: Okkur tókst að komast 25 km þrátt fyrir færið.

Jákvætt í dag 2: Það var gaman hjá okkur þrátt fyrir allt.

Jákvætt í dag 3: Videó-vélin mín virkar aftur.

Neikvætt í dag 1: Ekki hægt að byggja Igloo snjóhús úr snjónum.

Neikvætt í dag 2: Það er lítið eftir af smjöri og sykri.

Morgundagurinn verður spennandi, ætli færið verið betra? Verður vindurinn í bakið? Sól í andlitið? Vonandi. Í fyrramálið verður vakið kl. 06.00.

Kveðja, Christian Eide.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband